Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Engar sérstakar áherslur verða settar á þessu ári, en tekið verður mið af eftirfarandi við afgreiðslu umsókna (sbr. 5. grein menningarsamnings fyrir árið 2010):

  1. Efla samstarf á sviði menningarmála.
  2. Efla nýsköpun í verkefnum tengdum menningu.
  3. Atvinnutækifærum fjölgi á menningarsviðinu.
  4. Styðja við menningartengda ferðaþjónustu.

 

Menningarráðið mun hvorki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- né endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknarfrestur er til og með 12. mars 2010.

Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl 2010. Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum sem hægt er að nálgast á heimasíðu Menningarráðs www.sunnanmenning.is . Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögum . Námskeið í umsóknargerð fer fram 25. febrúar í umsjón Fræðslunets Suðurlands.

Umsóknir skal senda, í tölvupósti á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss.

documsoknareyðiblad_2010

 
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional