Styrkveitingar Menningarráðs Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Styrkveitingar Menningarráðs Suðurlands til menningarmála

Menningarráð Suðurlands veitir verkefnastyrki til menningarstarfs á svæðinu. Ákveðið hefur verið að úthlutað verði bara einu sinni á árinu 2009.  Úthlutunarreglur og leiðbeiningar við gerð umsókna eru aðgengilegar undir tenglinum hér til hægri.
 

Við styrkúthlutun 2009 verður litið sérstaklega til verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Að öðru leyti gilda sömu reglur og við fyrri úthlutanir.  Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.

Þeim sem hyggjast sækja um er bent á að vel gerð og ítarleg umsókn eykur möguleikana á styrk. Mikilvægt er að gefa sér góðan tíma til að vinna að umsókn og gera hana sem best úr garði, þannig að árangur náist.

Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Menningarráðið mun ekki veita rekstrar-, stofnkostnaðar- eða endurbótastyrki. Ekki verður heldur styrkt skráning á menningarminjum, starfsemi íþróttafélaga, bæjarhátíðir, almennar samkomur, safnaðarstarf og hefðbundið menningarstarf innan skóla.

Umsóknarfrestur er til og með 16. mars 2009. Ætlunin er að tilkynna um úthlutun í apríl. Úthlutað verður bara einu sinni árið 2009.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Suðurlands á þar til gerðum eyðublöðum .Allar nánari upplýsingar veitir Dorothee Lubecki, menningarfulltrúi Suðurlands, í síma 480-8207, 896-7511 eða með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. . Menningarfulltrúi verður til viðtals í öllum sveitarfélögunum. Dagsetningar verða tilkynntar á hverjum stað og á heimasíðu Menningarráðs, www.sunnanmenning.is . Umsóknir skal senda, í tölvupósti á menning@sudurland.is   eða í ábyrgðarpósti, til Menningarráðs Suðurlands, Austurvegi 56, 800 Selfoss. 

Hér fyrir neðan er hægt að nálgast umsóknareyðublað á Word-formi og nauðsynlegt er að vista skjalið fyrst í tölvunni áður en farið er að vinna í umsókn.

Fyrsta styrkúthlutun Menningarráðs Suðurlands fór fram í nóvember 2007 í Listasafni Árnesinga í Hveragerði og önnur úthlutun í apríl 2008 í Samgöngusafninu á Skógum. Þriðja úthlutun fór fram í Veiðisafninu á Stokkseyri í nóvember 2008. Hægt er að nálgast lista yfir styrkþega hér til hægri. 
 doc Umsóknareydiblad - 2009

doc Úthlutunarreglur vegna verkefnastyrkja

 
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional