Fréttir
Söngskemmtun í Aratungu 22. nóvember Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Vörðukórinn og Sönghópurinn Veirurnar verða með tónleikar laugardagskvöldið 22. nóvember kl. 20:30 í Aratungu.
Fjölbreytt og lífleg efnisskrá. 
Sönghópurinn Veirurnar samanstendur af söngfóki úr Skagafirði og af Suðurlandi. 
Söngstjóri er Guðbjörg R. Tryggvadóttir. Vörðukórinn er skipaður söngfólki úr uppsveitum Árnessýslu. Stjórnandi er Eyrún Jónasdóttir og undirleikari er Stefán Þorleifsson. Aðgangseyrir: kr. 1500
 
Styrkúthlutun haustið 2008 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Við haustúthlutun 2008 var litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:

  • Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
  • Verkefni sem stuðla að þátttöku listnema eða ungra listamanna frá Suðurlandi í listsköpun og menningarstarfi.
  Við auglýsingunni bárust 59 umsóknir og var sótt um samtals 63 milljónir. Styrkir voru veittir 36 aðilum, samtals u.þ.b. 11 milljónir króna. Afhending styrkja fer fram á úthlutunarhátíð sem haldin verður í Veiðisafninu á Stokkseyri þann 6. nóvember nk. kl. 16:00. Safnahelgi á Suðurlandi sem er samstarfsverkefni Safnaklasa og Matarklasa Suðurlands verður sett á sama tíma.

Styrkþegar og verkefni eru eftirfarandi:

Nánar...
 
VIÐVERA MENNINGARFULLTRÚA Í SVEITARFÉLÖGUM Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Í tengslum við styrkauglýsingu Menningarráðs Suðurlands verður menningarfulltrúi Suðurlands til viðtals í sveitarfélögum Suðurlands. Viðverutímar eru eins og segir hér fyrir neðan. Enginn ákveðinn tími er auglýstur á Kirkjubæjarklaustur ennþá. Áhugasamir eru beðnir um að hafa samband og panta tíma og/eða hafa samband við Jónu Sigurbjartsdóttur, formann Menningarráðs.
Ekki verða heldur auglýstir viðverutímar í Árborg sökum þess að menningarfulltrúi slasaðist í sumar og á í erfiðleikum með akstur. Vinnutími á skrifstofunni á Selfossi er þar af leiðandi ekki með sama hætti og venjulega. Allir sem hafa áhuga á að hitta menningarfulltrúa eru beðnir um að panta tíma símleiðis (896-7511) eða í tölvupósti ( Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. ).

Nánar...
 
Styrkveitingar Menningarráðs Suðurlands haustið 2008 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
vikivaki
Vikivaki
Næsta styrkúthlutun Menningarráðs Suðurlands verður í haust 2008. Umsóknarfrestur er til 20. september 2008. Menningarráð Suðurlands hefur ákveðið að við haustúthlutun 2008 verði litið sérstaklega til menningarverkefna sem fela í sér eftirtaldar áherslur:
  • Samstarf milli tveggja eða fleiri aðila, byggðarlaga eða listgreina og uppsetning viðburða á fleiri en einum stað.
  • Verkefni sem stuðla að þátttöku listnemar eða ungra listamanna frá Suðurlandi í listsköpun og menningarstarfi.
Nánar...
 
Þjóðhátíðarsjóður auglýsir eftir umsóknum - 31. ágúst Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
pastarchives.jpgÞjóðhátíðarsjóður hefur nú auglýst eftir umsóknum um styrki úr sjóðnum vegna ársins 2009. Þjóðhátíðarsjóður, sem starfar samkvæmt skipulagsskrá nr. 361 frá 30. september 1977 með áorðnum breytingum, var stofnaður í tilefni af 1100 ára búsetu á Íslandi 1974.

Tilgangur sjóðsins er að veita styrki til stofnana og annarra aðila, er hafa það verkefni að vinna að varðveislu og vernd þeirra verðmæta lands og menningar, sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Styrkir úr sjóðnum eru hugsaðir sem  viðbótarframlög til þeirra verkefna, sem styrkt eru, en verða ekki til þess að lækka önnur opinber framlög eða draga úr stuðningi annarra.
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional