Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir styrkumsóknum
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um
styrki á grunni samnings sveitarfélaga á Suðurlandi og
Menntamálaráðuneytis og Samgönguráðuneytis um menningarmál. Við styrkúthlutun 2009 verður litið sérstaklega til verkefna á sviði menningartengdrar ferðaþjónustu. Að öðru leyti gilda sömu reglur og við fyrri úthlutanir.
Einstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag.
Menningarráð heldur Málþing um menningartengda ferðaþjónustu í Árnesi 12. mars nk. kl. 10:00-17:00. Dagskrá er í vinnslu. Í tengslum við málþingið verður haldið markaðstorg menningarferðaþjónustu á Suðurlandi. Þátttaka á markaðstorgi er öllum opin og kostnaðarlaus. Skráning hjá menningarfulltrúa
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 480-8207 / 896-7511
Leonardó Starfsmenntun
Kynningarfundur á Selfossi, miðvikudaginn 28. janúar kl. 13:00 í sal þjónustuskrifstofu stéttarfélaganna, Austurvegi 56 á Selfossi.
Á fundinum verða kynnt tækifæri til styrkja á sviði stafsmenntunar í þremur flokkum Leonardó áætlunarinnar: (smellið á bláar fyrirsagnir til að fá nánari upplýsingar)
Jólatónleikar og veisla í
Skálholtsdómkirkju 6. des. nk.
Þann 6. desember nk. er boðið til sannkallaðrar jólaveislu í Skálholti
með tónleikum og hátíðarkvöldverði. Það eru Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju
og Skálholtsskóli sem standa saman að hátíðinni. Hugmyndin er að gestir upplifi
kyrrð og jólaanda fyrri tíma. Undanfarna áratugi hefur Skálholt dregið að sér
sífellt aukinn fjölda fólks sem vill upplifa þann sérstaka nið aldanna sem þar
er að finna og hefur ýmis menningarstarfsemi blómstrað þar sem endurspeglar
þessa stórbrotnu sögu. Þar hafa Sumartónleikar í Skálholtsdómkirkju verið
framarlega í flokki við að halda á lofti túlkun á tónlist fyrri alda. Einnig
hefur veitingahús Skálholtsskóla þróað sérstakan matseðil sem ber keim af
matarvenjum fyrri alda með hráefni í hæsta gæðaflokki, gjarnan úr nærsveitunum.
Bjarni Birgisson bryti hefur stýrt
þeirri þróunarvinnu.