Fréttir
Dagskrá á Þingvöllum í sumar Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Í annarri fimmtudagskvöldgöngu sumarsins 18.júní mun Ármann Jakobsson íslenskufræðingur fjalla um Brennu-Njáls sögu og  Titill göngunnar er tengsl hennar við Þingvelli.

Miklir ógæfumenn eiga hér í hlut að: Bótar og bætur í Brennu-Njáls sögu og gengið verður um þingstaðinn forna sem kemur oft við sögu í Brennu-Njáls sögu.

Gönguferðin hefst klukkan 20.00 við fræðslumiðstöðina og eru allir velkomnir. 

 

Um helgar er skipulögð dagskrá á Þingvöllum.  Alla laugardaga er gönguferð í eyðibýli í Þingvallahrauni kl 13.00 og tekur hún 2-3 klst.  Gönguferðin hefst við þjónustumiðstöðina og vissara er að vera vel skóaður og klæddur til útiveru.

Alla sunnudaga er fornleifaskóli barnanna klukkan 13.00 í Vallakrók á Efri-Völlum.  Þar geta börn spreytt sig í hlutverki fornleifafræðinga og grafið eftir fornleifum í tilbúinni búðarúst.  Öll börn fá viðurkenningu fyrir þátttöku og minjagrip. 

 

Öll þátttaka í dagskrá þjóðgarðsins er ókeypis og eru allir velkomnir.

 
Menningarráðin á Landsbyggðinni tengsl við þjóðmenningarstofnanir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Miðvikudaginn 13. maí sl. voru menningarfulltrúar landsbyggðarinnar staddir í Reykjavík í þeim tilgangi að heimsækja nokkrar þjóðmenningarstofnanir. Markmið þessara funda var að kynna starf okkar menningarfulltrúanna og menningarráðanna og kynnast starfsemi viðkomandi stofnana, með það í huga að koma á auknum tengslum og hugsanlegu samstarfi.

Eftirtaldar stofnanir voru heimsóttar og rætt við kynningarfulltrúa og í sumum tilfellum einnig aðalstjórnendur þeirra:

                                                                                                     Kynningarfulltrúar:

Listasafn Íslands                       - www.listasafn.is                     - Svanfríður Franklínsdóttir

Þjóðleikhús Íslands                   - www.leikhusid.is                    - Kristrún Heiða Hauksdóttir

Þjóðmenningarhúsið                  - www.thjodmenning.is             - Guðrún Garðarsdóttir

Listaháskóli Íslands                   - www.lhi.is                              - Álfrún Guðríður Guðrúnardóttir

Árnastofnun                              - www.arnastofnun.is                - Rósa Sveinsdóttir

Þjóðminjasafnið                        - www.natmus.is                       - Helga Vollertsen

Sinfóníuhljómsveit Íslands          - www.sinfonia.is                      - Margrét Ragnarsdóttir

Það er skemmst frá því að segja að alls staðar var okkur mjög vel tekið og lýst yfir miklum áhuga á auknum tengslum við landsbyggðina. Komu þar m.a. fram nokkrar hugmyndir um möguleika á slíku samstarfi.

Ég vil hvetja ykkur öll til að íhuga vel þennan möguleika. Það er hlutverk þessara stofnana að sinna öllu landinu, með þessu skapast möguleikar á því að taka þátt í verkefnum á landsvísu, þarna er ýmis sérfræðiþjónusta til staðar og vilji til samstarfs.

Einnig getum við menningarfulltrúarnir aðstoðað við  að koma á tengslum við þessar stofnanir vegna hugsanlegra verkefna, og við getum  komið á samstarfi  milli svæða. 

Gott samstarf er milli menningarfulltrúanna á landsbyggðinni og áhugi fyrir samstarfi.

 
Ályktun sem samþykkt var á Ráðstefnunni Menningarlandið 2009 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
 

 

Ályktun, samþykkt á ráðstefnunni Menningarlandið 2009.

 

Þátttakendur í ráðstefnunni Menningarlandið 2009, sem haldin var í Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí 2009, leggja áherslu á mikilvægi þess að vinna við endurnýjun menningarsamninga verði hraðað sem frekast er unnt þannig að nýir samningar liggi fyrir eigi síðar en í september 2009.

 Það samstarf sem komst á með ráðuneytum menningar- og ferðamála og sveitarfélögum með tilkomu menningarsamninganna hefur skilað ótvíræðum árangri í þróun og eflingu menningar, lista og ferðaþjónustu í landinu auk þess að stuðla að fjölgun atvinnutækifæra á því sviði. Það er því mikilvægt að endurnýjaðir samningar byggi á þeim grunni sem fyrir er og að áframhaldandi samstarf verði í þeim farvegi sem það nú er.

 

 

Við endurnýjun samninganna skal skoðað sérstaklega hvort ástæða sé til að útvíkka umfang þeirra þannig að hugsanlega verði þeir ekki einskorðaðir við úthlutun verkefnastyrkja auk þess að áhersla verði lögð á vinnu við menningarstefnu aðildarfélaga innan raunhæfra tímamarka.

Menningarlandið fagnar sérstaklega þeirri áherslu stjórnvalda á menningarmál sem komin er fram með skilgreiningu ráðuneytis mennta- og menningarmála.

Stykkishólmi 12. maí 2009

 

 
Styrkveitingar 2009 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Á þessu ári verður bara einu sinni úthlutað úr menningarsjóði Suðurlands. Í febrúar sl. auglýsti Menningarráð Suðurlands eftir umsóknum um styrki til eflingar menningarlífs á Suðurlandi. Alls bárust 146 umsóknir og var sótt um u.þ.b. 128 milljónir samtals. Á fundi ráðsins sem haldin var 02. apríl sl., var samþykkt að veita 105 umsækjendum styrki, samtals rúmlega 34 milljónir.

Við úthlutunina 2009 er litið sérstaklega til verkefna á sviði menningartengdra ferðaþjónustu.

Styrkjum Menningarráðs Suðurlands var afhent hátíðlega í Vestmannaeyjum þann 7. maí sl.

 

Nánar...
 
Menningarlandið 2009 - ráðstefna í Stykkishólmi Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Menntamálaráðuneyti, Iðnaðarráðuneyti og Samband íslenskra sveitarfélaga boða til ráðstefnu á Hótel Stykkishólmi dagana 11. og 12. maí í samstarfi við menningarráðin á landsbyggðinni. Fjallað verður um reynsluna af menningarsamningum ríkis og landshlutasamtaka sveitarfélaga og spurt hver árangur hafi orðið og hvert beri að stefna. Hvernig getum við nýtt okkur menningu og menningartengda ferðaþjónustu til nýrrar sóknar í nýsköpun og nýtingu menningararfs? Menningarráðin á landsbyggðinni kynna starfsemi sína og bjóða upp á fjölbreytt sýnishorn skapandi menningar. Fróðleg erindi og spennandi viðburðir.

 


Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional