Fréttir
Leonardo starfsmenntun - styrkir Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

leonardo.jpgNámskeið í gerð Leonardo umsókna um mannaskipti- og samstarfsverkefni verður haldið þriðjudaginn 12. janúar kl. 13-15 í Tæknigarði, Dunhaga 5, Reykjavík. Veittir eru styrkir til mannaskipta- og samstarfsverkefna í starfsmenntun.

Næstu umsóknarfrestir Leonardo verkefna eru:

Mannaskiptaverkefni: 5. febrúar 2010

Samstarfsverkefni: 19. febrúar 2010

Nánar...
 
Samtök um sögutengda ferðaþjónustu - Málþing og félagsfundur Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

ssf.jpgMálþing og félagsfundur SSF fer fram í Hala í Suðursveit 15.-16. janúar. Það er með ráðum gert að velja þessa dagsetningu því Ferðamálaþing verður í Reykjavík fimmtudaginn 14. janúar. Þau sem ætla á það þing en þurfa að ferðast langan veg geta þannig samnýtt ferðina og komið sér áfram austur að Hala daginn eftir. Við munum leigja rútu  sem leggur upp á frá Reykjavík. Tökum fólk uppí á leiðinni (Selfoss, Hvolsvöllur....o.s.frv). Kostnaðurinn deilist á þá sem nýta sér hana.

Nánar...
 
Menningarganga um Hveragerði – KONUR OG ANDINN Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Sunnudaginn 16. ágúst kl. 14

Bókasafnið í Hveragerði og Listasafn Árnesinga efna til menningargöngu um Hveragerði undir yfirskriftinni KONUR OG ANDINN

Lagt verður af stað kl. 14 frá Bókasafninu sem er staðsett í Verslunarmiðstöðinni við Sunnumörk. Göngunni lýkur í Listasafni Árnesinga með spjalli um yfirstandandi sýningu ANDANS KONUR, en þar eru verk Gerðar HelgadótturNínu Tryggvadóttur til sýnis og er útgangspunktur hennar skörun verka þeirra í Skálholti og í París á árunum 1952-57.

 

Nánar...
 
Árborg á Menningarnótt í Reykjavík 2009 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

13:40   Skrúðganga frá Hallargarðinum við Fríkirkjuveg  – Bjössi á mjólkurbílnum, Slagverkshópurinn T.Á, fornbílar,meðlimir  Götuleikhúsa Árborgar, fánaberar, heimafólk, gestir og gangandi

  •  Mjólkurbíll - brúsapallur /  leikið á nikku meðan beðið er eftir bílnum.
  •  Tjörnin við anddyri Ráðhúss             Líkan af Knarrarósvita
  •  Fornbílar -  boðið upp á skrans umhverfis Tjörnina 
  •  Tjarnarhólminn  – kýrnar 
  •  Kraum / Gamli Fógetinn       

      Aldamótaþorpið /   Sýning frá Gallerí Gónhól Eyrarbakka og

      Ölfusáin – Flóðin.  Gunnars Sigurgeirssonar ljósmyndara sýnir.    Ferjustaðir kynntir.

Eystri salur:

Kynningar, myndir og sýningar frá öllum stærstu byggðarkjörnum Sveitarfélags Árborgar, þ.e. frá Selfossi, Stokkseyri og Eyrarbakka.  Þar má nefna Húsið,  Byggðasafn Árnesinga, Gallerí Gónhól, Álfa- og draugasetrið, Veiðisafnið og ýmsa starfsemi listamanna í Hólmarastarhúsinu og annarra s.s. Sjafnar Har. Síðan má nefna sérstaka kynningu á starfsemi sveitarfélagsins og félagsskap innan þess eins og golf,  stangveiði, hestamennsku ofl.  Sérstök kynning verður á fuglafriðlandinu og frá fyrirtækjum og listhönnuðum af Árborgarsvæðinu.  Bílabænum Selfoss, blaðaútgáfu, svæðisútvarpi og fleiru gerð skil. 

 
Nánar...
 
Sumar í Odda Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Hefð er nú komin á tónleikaröð í Oddakirkju sem gengur undir nafninu “Sumar í Odda”. Um er að ræða viðburði sem félagar í Kór Odda- og Þykkvabæjarkirkna hafa staðið fyrir undanfarin ár. Markmiðið er að vekja athygli á þessum sögufræga og fallega stað og gefa ýmsum aðilum tækifæri til að koma fram hvort sem um er að ræða gamalreynda eða unga og óreynda listamenn. Margir hafa komið fram og glatt gesti með framlagi sínu, bæði heimamenn og aðrir. Óhætt er að segja að vel hafi tekist til og hefur aðsókn aukist ár frá ári.


Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional