Fréttir
Styrkir til nýsköpunar - umsóknarfrestir í febrúar Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
my-invoices.pngIðnaðarráðuneytið hefur auglýst eftir umsóknum um styrki úr verkefninu Átaki til atvinnusköpunar og er umsóknarfrestur til og með 16. febrúar. Átakið styrkir nýsköpunarverkefni og markaðsaðgerðir starfandi frumkvöðla- og nýsköpunarfyrirtækja. Sótt er um rafrænt á vef Impru á Nýsköpunarmiðstöð Íslands. Við síðustu úthlutun sjóðsins í desember var úthlutað 38.700.000 kr. til 50 verkefna en 305 umsóknir bárust. Nánar um Átak til atvinnusköpunar
 
Sönghelgi á Selinu á Stokkalæk Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Næsta helgi verður sannkölluð sönghelgi í Selinu á Stokkalæk þar sem tærir tónar og gamanmál munu ráða ríkjum. Föstudaginn 29. janúar kl. 20 verður Óp-hópurinn með óperettukvöld þar sem einsöngur og samsöngsatriði úr þekktum óperum verða á efnisskránni. Óp-hópurinn er nýstofnaður félagsskapur ungra óperusöngvara sem leggur nú kapp á að kynna sig og koma fram opinberlega. Fyrstu kvöldtónleikar hópsins voru í Íslensku óperunni 19. janúar sl. þar sem sama efnisskrá var flutt og nú verður endurtekin í Selinu. Í Óp-hópnum eru þau Bylgja Dís Gunnarsdóttir sópran, Erla Björg Káradóttir sópran, Hörn Hrafnsdóttir mezzósópran, Jóhanna Héðinsdóttir mezzósópran, Jón Svavar Jósefsson barítón, Rósalind Gísladóttir mezzósópran, Rúnar Þór Guðmundsson tenór en Antonía Hevesi leikur með hópnum á píanó.
Nánar...
 
Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Kraumur tónlistarsjóður auglýsir eftir umsóknum fyrir verkefni á sviði íslenskrar tónlistar sem ráðgert er að eigi sér stað árið 2010. Tónlistarmenn og hljómsveitir úr öllum geirum tónlistar eru hvattir til að sækja um fyrir sín verkefni.

Umsóknarferlið er einnig opið fyrir viðburði, námskeið og fræðsluverkefni.

Nánar...
 
Námskeið í gerð stýrkumsókna Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Námskeiðið er sérstaklega hugsað fyrir þá sem hyggjast sækja um styrki úr hinum ýmsum sjóðum. Á námskeiðinu fá þátttakendur leiðbeiningar um hvernig æskileg er að byggja umsóknir upp og ganga frá þeuim, hvaða fylgiskjöl og útreikningar þurfa að fylgja umsóknum og fl.
Nánar...
 
Áherslur og umsóknarfrestir Norræna menningarsjóðsins árið 2010 Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

4960786a46664b6ebb63c25252c76eb9.gifNorræni menningarsjóðurinn styrkir norrænt lista- og menningarsamstarf, fagfólks sem leikmanna.

Frá og með 1. janúar 2010 ganga í gildi fimm nýjar áherslur Norræna menningarsjóðsins. Sjóðurinn leggur áfram metnað í að styrkja norrænt menningarsamstarf í víðum skilningi.

• verkefni fyrir og með börnum og unglingum

• verkefni með áherslu á aukna þekkingu á mismunandi tungumálum Norðurlandanna og þýðingu tungumálsins við að varðveita menningu

• verkefni sem hvetja til þátttöku nýrra Norðurlandabúa í norrænu menningarsamstarfi

• verkefni sem unnin eru á fámennum svæðum á Norðurlöndum

• verkefni sem hvetja til samstarfs á milli vestnorrænu landanna (Færeyja, Grænlands og Íslands) og hinna Norðurlandanna

Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 8 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional