Fréttir
Tækifæri fyrir handverksfólk Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Ákveðið hefur verið að halda handverkssýninguna “Arctic Arts & Crafts 2010 “  í Laugardalshöll dagana 28. október til 3. nóvember n.k. Sýningin er jafnframt sölusýning. Sýningin er haldin í samstarfi við menntamálaráðuneyti vestnorrænu landanna og verður hún  tengd þingi Norðurlandaráðs sem haldið verður í Reykjavík dagana 1. til 4. nóvember í haust. Sýningin er fyrirhuguð sem gæða handverkssýning  þar sem vestnorrænu þjóðirnar eru aðalsýnendur en auk þess að kynna handverk norðurslóða.  Kynning á löndum og sjálfstjórnarsvæðum verður t.d. gerð með þjóðbúningum allra landa og svæða ásamt með vinnusýningum svo sem bátasmíði frá Færeyjum, Íslandi og Grænlandi ( kajak). 

Margt handverksfólk hefur verið að nýta menningararfinn til sköpunar og framleiðslu frábærra hluta og vonumst við til að á sýningunni gefi að líta alla þá flóru handverks sem er í gerjun hér á landi um þessar mundir. Stefnt er að farandssýningu á handverki vestnorrænu landanna árin 2011 og 2012 og verða munir valdir úr þessari sýningu af sérstakri valnefnd. Þeir sem hafa áhuga á að taka þátt í sýningunni þurfa að fylla út umsóknareyðublað á vefsíðunni http://www.vestnordencrafts.com og þurfa að fylgja minnst þrjár ljósmyndir af þeim hlutum sem fyrirhugað er að sýna. Umsóknarfrestur er til 22. mai 2010*. Valnefnd mun síðan fara yfir umsóknir í lok maí n.k. Kostnaður er kr. 32.000 auk virðisaukaskatts fyrir 5 fm. sýningaraðstöðu og er þá merking og ljós innifalið. Hægt er að vera fleiri en einn um aðstöðuna. 

Allar nánari upplýsingar er hægt að fá hjá Reyni Adólfssyni með tölvupósti Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. eða í síma 896 9400. Virðingarfyllst  Reynir Adólfssonverkefnisstjóri 

*Ef þörf er á að lengja umsóknarfrest þá vinsamlegast hafið samb. 

Ópera Gala - tónleikar í Hveragerðiskirkju Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
Óperutónleikar í Hveragerðiskirkju 13. mars kl.17:00 Ópera Gala flytja aríur og dúettar úr nokkrum óperuperlum t.d. úr Ævitýrum Hoffmanns, Leðurblökunni, Lakmé og Hans og Grétu. Flytjendur: Kristín Ragnhildur Sigurðardóttir sópran, Hólmfríður Jóhannesdóttir mezzósópran og Julian M. Hewlett Píanóleikari.
 
Emil í Kattholti hjá Leikfélagi Hveragerðis Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst

Leikfélag Hveragerðis frumsýnir Emil í Kattholti. Nú þegar líða tekur á seinni hluta vetrar og vorið tekur á móti okkur þá höfum við hjá Leikfélagi Hveragerðis staðið í ströngu við að skipuleggja frábæra fjölskylduskemmtun sem enginn ætti að láta framhjá sér fara. Um er að ræða meistaraverk Astridar Lindgren um strákskrattann og ólátabelginn Emil í Kattholti í þýðingu Vilborgar Dagbjartsdóttur. Leikstjórinn að þessu sinni er Sigurður Blöndal og þekkir hann vel til félagsins því hann leikstýrði meðal annars Kardimommubænum og Dýrunum í Hálsaskógi við góðan orðstír. Er þetta tilvalin skemmtun fyrir einstaklinga og hópa sem vilja gera sér dagamun og leggja upp í einstaka fjölskylduferð. Margt hefur gengið á hjá okkur síðustu misseri og má þar nefna endurbætur á húsnæði okkar(Austurmörk 23 beint á móti Shell og við hliðina á Eden.) og í framhaldi af því setjum við upp eina umfangsmestu sviðsmynd sem við höfum gert og það fyrir pollann hann Emil. Yfir 30 manns hafa lagt hönd á plóg til að láta þessa sýningu verða að veruleika og má einnig nefna að leikfélagið var í góðu samstarfi við grunnskólann hér í bæ við smíð á hinum ýmsu leikmunum og eru einnig nokkrir nemendur skólans sem láta ljós sitt skína í verkinu.

Með helstu hlutverk fara:

Dagbjartur Kristjánsson sem Emil,
Gunnhildur Fríða Hallgrímsdóttir sem Ída,
Gunnar Þór Jónsson sem Anton (pabbi),
Hafdís Ósk Guðmundsdóttir sem Alma (mamma),
Guðmundur Kr. Erlingsson sem Alfreð og
Berglind María Ólafsdóttir sem Lína. 

Hér að neðan má svo sjá skipulag fyrstu sýningahelga og er þessi listi ekki tæmandi því að við munum reyna að bæta inn á milli og aftan við, dagsetningum ef það hentar betur og ef aðsókn leyfir svo ekki hika við að spyrja um dagsetningar sem ekki eru á skipulaginu og við reynum að verða við þeim óskum. 

Sýningaskipulag fyrir Emil í Kattholti 
Dags      Dagur       Tími      
13.mars     Laugardagur    Kl:15.00   Frumsýning     
14.mars     Sunnudagur     Kl:18.00    
19.mars     Föstudagur      Kl:18.00    
20.mars     Laugardagur    Kl:15.00 
21.mars     Sunnudagur     Kl:14.00  
26.mars     Föstudagur      Kl:18.00 
27.mars     Laugardagur    Kl:15.00

------------------------------------------------------------ 

Við hjá Leikfélagi Hveragerðis höfum ávallt reynt að hafa miðaverð í lágmarki þrátt fyrir umfang sýninga og er verðskráin fyrir Emil í Kattholti sem hér segir: 
Almennt verð (5ára og eldri): 1
700 kr.
Hópar 15+:                              1500 kr.
Börn 4 ára og yngri:                Engir peningar :D  

Miðapantanir eru í Sjoppunni Sunnumörk í síma 587-1818frá kl.12-18 alla daga 
ATH. Húsið opnar 30 mínútum fyrir áætlaðan sýningartíma og eru miðarnir greiddir á staðnum.

Nánar...
 
Menningarráð Suðurlands auglýsir eftir umsóknum um styrki Prentvæn útgáfa Senda í tölvupóst
tell-a-friend.pngEinstaklingar, félagasamtök, fyrirtæki, stofnanir og sveitarfélög á Suðurlandi geta sótt um styrki en skilyrði er að umsækjendur sýni fram á mótframlag. Heimilt er að sækja um styrk til verkefna sem umsækjandi er þegar byrjaður að vinna í.
Nánar...
 
<< Fyrsta < Fyrri 1 2 3 4 5 6 7 Næsta > Síðasta >>

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
Copyright © 2005 - 2010 sunnanmenning. Designed by JoomlArt.com Our site is valid CSS Our site is valid XHTML 1.0 Transitional